AUGLÝSING UM STYRKI
Íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation mun árlega verja 3 - 4 milljónum króna til að styrkja tengsl Íslands og Japans. Aðallega verða veittir styrkir til menntamála og rannsóknarverkefna, en auk þess fáeinir á sviði menningar og lista. Styrki þessa má veita stofnunum og einstaklingum.
Styrkirnir eru til verkefna i samstarfi eða í tengslum við japanska aðila. Veittir eru ferðastyrkir, námsstyrkir og styrkir til skammtíma dvalar í Japan.
Í umsókn, sem verður að vera á ensku, sænsku, norsku eða dönsku, skal gefa stutta en greinargóða lýsingu á fyrirhuguðu verkefni ásamt fjárhagsáætlun og meðmælum a.m.k. tveggja umsagnaraðila. Auk þess verður að fylgja náms- og starfsferill umsækjanda og staðfesting frá samstarfsaðila í Japan og/eða þeim tengilið, sem skipuleggur dvölina þar.
Fyrir hönd fulltrúa Íslands í stjórn Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation, tekur ritari Íslandsdeildar
Björg Jóhannesdóttir
Bustadavegur 77
108 Reykjavík
sími: +354-515-2607
mobile: +354-820-5292
bjorgmin@gmail.com
við umsóknum og veitir allar frekari upplýsingar. Umsóknir skulu berast fyrir 1 mars.